| Þú getur! |
![]() Markmið Forvarna- og fræðslusjóðsins ÞÚ GETUR! eru:
Umfjöllun um geðræna vanlíðan og fordóma er afar mikilvæg á tímum áfalla og álags sem nú eru á Íslandi. Álagstengda vanlíðan má með ýmsum ráðum bæta og góð meðferðarúrræði eru til gegn geðrænum veikindum. Að auki eru fræðsla og opin umræða mikilvægir þættir til forvarna. Geðsjúkdómar eru meðal algengustu sjúkdóma og valda þjáningum hjá sjúklingum og álagi á aðstandendur. Þessir sjúkdómar byrja oft í kjölfar álags og áfalla og geta skert starfsgetu og lífsgæði. Þrátt fyrir miklar framfarir í meðferðarmöguleikum og aukna þjónustu, félagslegan stuðning og endurhæfingu, er mikil þörf fyrir frekari sérhæfingu og aukna möguleika til eflingar. Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) hvetur mjög til aukinnar fræðslu fyrir sjúklinga og eflingu menntunar fagstétta. Við sem stöndum að stofnun sjóðsins vonum að vel takist til og að sjóðurinn verði öflugur. Við leggjum verkefninu ótrauð allt það lið sem á okkar valdi stendur og vonumst eftir að sem flestir vilji taka þátt í því með okkur. Sjóðurinn starfar á grundvelli laga nr. 19 frá 1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er undir opinberu eftirliti skv. sömu lögum. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun. Endurskoðun er í höndum endurskoðenda hjá Deloitte. Stofnandi sjóðsins er dr. Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og í stjórn sitja auk hans, Ása Ólafsdóttir hrl., lögmaður, Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og f.v. heilbrigðisráðherra, sr. Pálmi Matthíasson sóknarprestur í Bústaðasókn og dr. Sigurður Guðmundsson forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og f.v. landlæknir. Stofnstyrktaraðilar sjóðsins eru: Heilbrigðisráðuneytið, Landsnet, Forvarnir ehf. og Actavis. Við þökkum áhuga þinn og stuðning við málefnið. Stjórnin Þeim sem styðja vilja sjóðinn með upphæð að eigin vali er bent á að auðveldast er að nota heimabankann: Bankareikningur nr. 336-26-1300, Kennitala 621008-0990
|
Þú getur!
