Forsíða Samstarf
Samstarf

Þjónustusamningur við Sjóvá

Þann 25.maí undirrituðu Þór Sigfússon forstjóri Sjóvár og Ólafur Þór Ævarsson frá Streituskólanum þjónustusamning er tekur til aukinnar vinnuverndar og heilsueflingar starfsmanna félagsins.
Samningurinn gerir starfsmönnum Sjóvár kleift að fá ráðgjöf, leiðbeiningar og stuðning í einstaklingsviðtölum í kjölfar óttavekjandi eða óþægilegra atburða í starfi eða einkalífi.
Einnig tekur Sjóvá upp þá nýjung í samvinnu við Streituskólann, að bjóða viðskiptavinum Sjóvár sem orðið hafa fyrir miklum og alvarlegum áföllum tafarlausa meðferð, ráðgjöf eða áfallahjálp sem veitt er af sálfræðingi.

 

 


 

Samstarfssamningur við VST

Forvarnir ehf hafa gert samstarfssamning við Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thoroddsen hf. um samvinnu um þjónustu við fyrirtæki á sviði vinnuverndar.

Myndin sýnir forráðamenn fyrirtækjanna við undirritun samnings. Frá hægri: Viðar Ólafsson framkvæmdastjóri VST, Ólafur Þór Ævarsson, framkvæmdastjóri Forvarna, Dóra Hjálmarsdóttir verkfræðingur og verkefnisstjóri öryggismála og Örn Steinar Sigurðsson yfirverkfræðingur verkefnastjórnunarsviðs VST.

 

 

 

 


 

Framlengdur þjónustusamningur við Landsnet um fræðslu og forvarnir

Forvarnir ehf og Landsnet hafa framlengt þjónustusamning til eins árs í viðbót. Það er stefna Landsnets að huga vel að heilsueflingu á vinnustað enda eru starfsmenn fyrirtækisins í vandasömum störfum sem oft fylgir mikið álag. Landsnet hefur því óskað eftir þjónustusamningi við Forvarnir ehf. um nýjung í heilsuvernd og eflingu streituvarna á vinnustað. Forvarnir ehf. hafa að beiðni forráðamanna Landsnets skipulagt fræðslu- og kynningarátak sem er sérsniðið að þörfum starfsmanna og munu þeir fá á tímabilinu fræðslu og aðstoð við gerð persónubundinnar áætlunar í streituvörnum og heilsueflingu. Starfsmenn fyrirtækisins munu einnig hafa aðgang að sérfræðingum Forvarna, sem veita fræðslu og stuðning.

Meðfylgjandi mynd sýnir Þórð Guðmundsson forstjóra Landsnets og Ólaf Þór Ævarsson framkvæmdastjóra Forvarna ganga frá þjónustusamningnum.