Forsíða Námskeið
Námskeið

Forvarnir bjóða lengri eða skemmri námskeið og eða stuttar kynningar sem eru sérsniðnar að þörfum fyrirtækja, stofnana, félaga eða annarra áhugasamra um málaflokkinn.
Nánari upplýsingar um námskeið og kynningar fást hjá starfsmönnum Forvarna.

Skráning í námskeið Streituskólans:

  • Í síma 590 9290 virka daga kl.10-12
  • Eða með tölvupósti: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Námskeið í boði

Námskeið er hægt að skipuleggja sérstaklega fyrir vinnustaði ef þess er óskað. Slík námskeið geta farið fram á vinnustaðnum sjálfum en það hentar oft stærri fyrirtækjum. Einnig er mögulegt að skipuleggja námskeið í húsnæði Streituskólans.

Námskeið 1- Streitufræði
Fræðsla um jákvæða og neikvæða streitu og streituvarnir.
Sagt er frá hvernig streita myndast og hvaða áhrif hún hefur á andlega og líkamlega heilsu.
Áhyggjur, verkkvíði, þunglyndi.
Námskeið er fyrir þá sem vilja fá grunnþekkingu á streitu.
Tími: 2 klst.

Námskeið 2 – Streita á vinnustaðnum.
Streita. Streituvaldar í vinnunni. Tímaleysi. Ábyrgð, sjálfræði. Burnout-kulnun. Fyrirtækjamenning.
Tími: 2 klst. þrisvar sinnum.
Þessi námskeið er einnig mögulegt að skipuleggja sérstaklega fyrir vinnustaði.

Námskeið 3 – Streita og samskipti.
Áhrif streitu á líðan og heilsu. Persónuþættir. Viðbrögð. Samskipti.
Tími: 2 klst. Þrisvar

Námskeið 4 – Fræðsla um geðsjúkdóma fyrir almenning.
Frætt er um helstu geðsjúkdóma á faglegan en skiljanlegan hátt. Rætt er um eðli, orsakir og greiningu ásamt meðferð og horfum. Rætt er um áhrif og afleiðingar geðsjúkdóma og viðbrögð einstaklinga og fjölskyldna við þeim.
Þeir geðsjúkdómar sem fjallað verður um á þessu námskeiði eru: þunglyndi, kvíði, fælni, geðklofi og heilabilun.
Tími: 1 1/2 klst. Þrisvar, að kvöldi.

Námskeið 5 – Fræðsla um geðsjúkdóma fyrir fagfólk.
Farð er yfir nýjustu upplýsingar um helstu geðsjúkdóma.
Frætt er um afleiðingar þeirra og áhrif á getu.
Fjallað er ítarlega um lífsgæði með geðsjúkdóma og fötlunaráhrif þeirra.
Hentar vel fyrir fagfólk s.s. hjúkrunarfræðinga í heimahjúkrun, starfsfólk félagsþjónustu, umönnunarfólk í félagsþjónustunni eða öldrunarþjónsutu.

Fræðslu og umræðuhópar

Til athugunar er að stofna fræðslu- og umræðuhópa um eftirtalin málefni. Þeir sem kynnu að hafa áhuga á slíku geta skráð sig og fá þá sendar nánari upplýsingar síðar.

Hópur A: Félagsfælni
Fyrir þá sem líður illa innan um fólk og finna kvíðahindrun í samkiptum.
Stundartafla: 2 klst. vikulega í 6 skipti.
Fjöldi: 10

Hópur B: Einstæða móðirin
Fyrir einstæðar mæður sem vilja sækja stuðning í reynsluheim annarra einstæðra mæðra.
Stundartafla: 2 klst. vikulega í 4 skipti.
Leiðbeinendur:
Fjöldi: 10

Hópur C: Íslenska súperkonan
Stundartafla: 2 klst. vikulega í 4 skipti.
Leiðbeinendur:
Fjöldi: 10

Hópur D: Aðstandendur heilabilaðra
Stundartafla: 2 klst. vikulega í 3 skipti að kvöldlagi.
Leiðbeinendur:
Fjöldi:18

Hópur E: Hinn tímalausi stjórnandi
Stundartafla: 2 klst. vikulega í 6 skipti.
Leiðbeinendur:
Fjöldi: 10