Streituskólinn Streituskólinn er nýr vettvangur fyrir fræðslu og umræðu um álag og álagstengd heilsufarsvandamál og forvarnir gegn þeim. Haldin eru námskeið fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félög. Í streituskólanum er veitt fræðsla um streitu og áhrif hennar á heilsu og líferni. Í fyrirlestrum er greint frá lífefnafræði streitu og tengslum við líkamlega og andlega vanlíðan og sjúkdóma. Frætt er um áhrif streitu á líðan, lífsstíl og fjölskyldulíf og áhrif streitu á vinnugetu. Greint er frá rannsóknum á fjárhagslegum áhrifum neikvæðrar streitu á rekstur og framleiðni fyrirtækja og hættu á kulnun. Gefin verða streituráð og veitt fræðsla um samskipti, viðbrögð og sálræna varnarhætti. Lögð er áhersla á faglega kynningu og umfjöllun byggða á vísindalegum rannsóknum. Þátttakendum gefst kostur á að ræða efni fyrirlestranna og gera fyrirspurnir til kennaranna. Kennarar - Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir, dr.med.
- Erla S. Grétarsdóttir, PhD, sálfræðingur
- Ólafur Árnason, MA, sálfræðingur
|