| Starfsfólk |
![]() Ólafur Þór ÆvarssonÓlafur Þór Ævarsson er sérfræðingur í geðlækningum og hefur starfað við háskólageðdeildir erlendis og hérlendis. Hann hefur starfað að vísindarannsóknum á annan áratug og lauk doktorsprófi í geðlækningum frá Háskólanum í Gautaborg 1998. Ólafur Þór hefur flutt fjölda fyrirlestra bæði hérlendis sem erlendis og hefur birt fræðilegar greinar í erlendum vísindatímaritum, ritað greinar í íslensk tímarit um geðraskanir og útbúið og þýtt kennsluefni og kynningarrit fyrir fagfólk og almenning. ![]() Erla S. GrétarsdóttirErla S. Grétarsdóttir er klínískur sálfræðingur og lauk doktorsgráðu í klínískri sálfræði frá Bandaríkjunum árið 2004. Í doktorsnáminu sérhæfði Erla sig í öldrunarsálfræði og hefur unnið að málefnum aldraðra bæði hérlendis og erlendis. Erla hefur unnið mikið að málefnum einstaklinga með heilabilun og veitt aðstandendum slikra einstaklinga ráðgjöf. Erla hefur einnig mikla reynslu í einstaklingsmeðferð á kvíðaröskunum, streitu, þunglyndi og persónuleikaröskunum ásamt því að stunda meðferð fyrir hjón og hópa. Erla hefur starfsreynslu frá Bandaríkjunum þar sem hún vann á geðdeildum, hjúkrunarheimilum, taugadeild fyrir einstaklinga með heilaskaða, göngudeild fyrir einstaklinga með geðraskanir og stundaði kennslu á háskólastigi. Hér heima hefur Erla starfað á geðsviði og öldrunarsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss, kennt öldrunarsálfræði við Háskóla Íslands og rekið sálfræðistofu. Að auki hefur Erla stundað vísindarannsóknir, birt greinar í erlend og íslensk fræðirit og flutt fjölda fyrirlestra fyrir fagfólk og almenning. ![]() Ólafur ÁrnasonÓlafur Árnason lauk BA prófi í Sálfræði frá Truman University árið 1991 og MA prófi Hjónabands – og fjölskylduráðgjöf (MFCC) frá Sonoma State University árið 1996. Ólafur starfaði á Social Service Agency í Santa Rosa í Kaliforníu þar sem hann vann með fjölskyldum, einstaklingum og pörum auk þess að stjórna ýmsum meðferðarhópum. Má þar meðal annars nefna hópavinnu með karla/konur sem höfðu verið gerendur í líkamlegu og andlegu ofbeldi á heimili sínu. Eftir heimkomu frá Bandaríkjunum hefur Ólafur meðal annars verið yfirmaður þjónustusviðs Tals, yfirmaður starfsmannasviðs Kaupáss og OZ og starfað sem ráðgjafi hjá PWC en samhliða þeim störfum hefur hann ávallt rekið ráðgjafarstofu. Hann hefur því víðtæka innsýn inn í íslenskt atvinnulíf og haldið hin ýmsu námskeið og fyrirlestra þar á undanförnum árum. Ólafur hefur alla tíð verið mikið tengdur íþróttahreyfingunni og spilaði í mörg ár knattspyrnu í USA og í efstu deild á Íslandi. Jafnframt því hefur hann þjálfað yngri flokka nokkurra félaga bæði hérlendis og erlendis. Netfang: oli hjá forvarnir.net ![]() Guðrún BlöndalGuðrún Blöndal er deildarstjóri framhalds- og endurhæfingardeildar 28 á geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss. Hún er reyndur hjúkrunarfræðingur og hefur viðtæka reynslu af hjúkrun á sjúkradeildum í Svíþjóð og á Íslandi. Hún hefur mikla þekkingu og langa reynslu af umönnun og hjúkrun geðsjúkra og er einn af frumkvöðlum í endurhæfingu geðsjúklinga utan stofnana.
![]() Svanhvít AradóttirSvanhvít Aradóttir er þroskaþjálfi að mennt, útskrifuð úr Þroskaþjálfskóla Íslands vorið 1997. Hún starfaði við Leikskólann Sólborg í Reykjavík 1997-1999 og frá 2000 sem forstöðu- þroskaþjálfi hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Austurlandi. Hún ber ábyrgð á og annast ráðgjöf og stuðning við fatlað fólk í Fjarðabyggð í samvinnu við Svæðisskrifstofuna og sveitarfélagið Fjarðabyggð. Hún veitir forstöðu þjónustuíbúðum að Bakkabakka 15 í Fjarðabyggð. Svanhvít hefur aflað sér reynslu og þekkingar á skipulagningu þjónustu fyrir fatlaða og þá sérstaklega einstaklinga með langvinna og hamlandi geðsjúkdóma. ![]() Ásdís S. ArnljótsdóttirMóttökustjóri
|
Starfsfólk




