| Þjónusta |
FræðslaÞekkt er að vellíðan í starfi skiptir miklu hvað varðar starfsgetu, úthald og einbeitingu. Að sjálfssögðu skiptir þetta enn meira máli nú á dögum þegar rekstur fyrirtækja byggir fremur á andlegri hæfni en endingu véla í verksmiðju áður fyrr. Nýlegar rannsóknir benda til að álag og streita fari vaxandi og að álagstengd vanlíðan og hætta á kulnun í starfi valdi vaxandi truflun á rekstri fyritækja og sé ein af höfuðorsökum fjarveru frá vinnu. Á þetta ekki síst við í fyrirtækjum þar sem unnin er huglæg vinna þar sem krafa er um frumlega hugsun og nýsköpun. Skipuleg fræðsla stjórnenda og starfsmanna um þessa þætti er því mikilvæg og er það hlutverk Forvarna ehf að sinna slíkum verkefnum. Í fyrirlestrum er gerð grein fyrir mikilvægi ánægju í starfi og veitt fræðsla um viðnám gegn streitu og kulnun. Sagt er frá forvörnum gegn álagstengdum kvíða og depurð og frætt er um samskipti og samspil atvinnu- og fjölskyldulífs. Ráðgjöf fyrir stjórnendur og starfsmannastjóraForvarnir ehf. bjóða upp á ráðgjöf um sérstök vandamál starfsmanna s.s. veikindi, vanlíðan eða samskipti. Þá er hægt að greina og meta orsakir og eðli fjarveru og koma með tillögur um úrbætur í samráði við stjórnendur. Einnig er mögulegt að skipuleggja átaksverkefni varðandi veikindi og fjarveru. Einstaklingviðtöl við starfsmennÍ kjölfar fyrirlestra og fræðslu er mögulegt að bjóða starfsmönnum einstaklingsviðtöl við geðlækni. |
Þjónusta