Forsíða
Forvarnir - Streituskólinn - ný þjónusta fyrir fyrirtæki

Stjórnendur fyrirtækja gera sér sífellt betri grein fyrir mikilvægi þess að hlúa vel að mannauði fyrirtæksins. Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga:

  • Streita og álagstengd vanlíðan fer vaxandi og hefur mikil áhrif á heilsu.
  • Fjarvera frá vinnu vegna álagstengdrar vanlíðunar hefur veruleg áhrif á framleiðni og fjárhag fyrirtækja og kostnaður samfélagsins vegna þessa er mikill.
  • Aukinn notkun þunglyndis- og kvíðalyfja hefur verið gagnrýnd og er talin tengjast auknum hraða í þjóðfélaginu og streitu.
  • Manneskjan er vel útbúin líffræðilega og sálarlega til að takast á við streitu.
  • Viðhorf, þekking og viðbrögð skipta miklu máli hvað varðar þol gegn streitu, ánægju í vinnu og vellíðan.
  • Hlutverk Streituskólans er að miðla upplýsingum um vísindalega þekkingu og reynslu þeirra sem fást við streituvarnir og heilsuvernd og vekja fólk til umhugsunar um hvernig það getur elft streituvarnir og heilbrigði.

Forvarnir hafa viðurkenningu Vinnueftirlitsins til að veita ráðgjöf um sál- og félagslega áhættuþætti á vinnustöðum.

 
Þú getur! Forvarna- og fræðslusjóður
Stofnaður hefur verið nýr sjóður sem hefur að markmiði að styrkja þá til náms sem átt hafa við geðræn veikindi að stríða, að efla nýsköpun og bætta þjónustu við geðsjúka á sviði fræðslu og forvarna og draga úr fordómum í samfélaginu. Sjá nánar hér.

Myndin er frá stofnfundi sjóðsins. Frá vinstri: Siv Friðleifsdóttir, Pálmi Matthíasson, Ólafur Þór Ævarsson og Sigurður Guðmundsson. Á myndina vantar Ásu Ólafsdóttur.

 
Áfall og viðbrögð - nokkur góð ráð
Hér er stutt samantekt um þau áhrif sem áföll geta haft á okkur og hvernig bregðast má við.
 

Styrktartónleikar

 

Munið styrktartónleikana í Bústaðakirkju miðvikudaginn 30. september.

Smellið á myndina hér fyrir neðan til að sjá auglýsingu.